Til hamingju Elínrós

Björn formaður afhenti Elínrós vinninginn.
Björn formaður afhenti Elínrós vinninginn.

Nýlega framkvæmdi Gallup könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Könnunin var líka happdrættismiði því allir sem tóku þátt gátu unnið veglega vinninga.

Fyrr í morgun kom félagsmaður á skrifstofuna á Akureyri til að ná í vinning sem hún fékk með því að taka þátt í könnuninni. Þetta var Elínrós Sveinbjörnsdóttir sem fékk 1. vinning að upphæð kr. 150.000. Undanfarin ár hafa 1.500 félagsmenn verið valdir handahófskennt úr félagaskránni og fengið boð um að taka þátt í launakönnun Einingar-Iðju.

Elínrós sagði að hún hefði nú ekki verið lengi að svara þó að spurningarnar hefðu verið þó nokkrar. "Það er alveg greinilegt að það borgaði sig að taka frá smá tíma til að svara þessari könnun,“ sagði Elínrós mjög sátt með vinninginn. 

Átta veglegir vinningar voru í boði eftir að könnuninni lauk, fjórir á hvort félag. Tveir vinningar að upphæð  kr. 150.000 og tveir kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna. 

Í ár lentu einnig 20 þátttakendur strax í happdrættispotti, 10 frá hvoru félagi, voru í raun dregnir út áður en þeir svöruðu. Hinir heppnu vinningshafar fengu tilkynningu um það um leið og þeir höfðu lokið við að svara könnuninni, um er að ræða kr. 15.000 inneign á debetkorti sem þeir nálguðust á skrifstofu félagsins á Akureyri. Aðeins sjö þeirra sem dregin voru út svöruðu sem þýðir því miður að þrír félagsmenn Einingar-Iðju misstu af því að fá vinning upp á kr. 15.000. Það getur borgað sig að taka þátt!