Trúnaðarmannanámskeið á næstunni

Nú stendur yfir skráning á trúnaðarmananámskeið hluta 1 sem verður haldið dagana 22. til 24. janúar nk. Búið er að senda bréf á þá trúnaðarmenn sem ekki hafa farið á trúnaðarmannanámskeið og eiga því eftir að sitja hluta 1 og minnum við þá á að síðasti dagur til að skrá sig á námskeiðið er miðvikudagurinn 15. janúar nk. 

Fljótlega verða send bréf á þá trúnaðarmenn sem eiga eftir að sitja hluta 2 og svo einnig á þá sem eiga eftir að sitja hluta 3 og 4. Námskeiðin eru trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu.  

Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, mun halda eftirfarandi trúnaðarmannanámskeið fram á vorið:

Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00. Námskeiðin eru trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu.

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðin eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til félagsins í síma 460 3600. 

Sjá nánar hér