Viðbrögð ASÍ við nýrri skýrslu um aðstæður erlends starfsfólks í ferðaþjónustu  

Algengustu brot sem erlent starfsfólk í ferðaþjónustu verður fyrir eru vegna vangreiddra launa og brota á reglum um hvíldartíma og frídaga. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála undir yfirskriftinni Aðstæður erlends starfsfólks í ferðaþjónustu: Sjónarhorn stéttarfélaga og starfsfólks. Niðurstöður skýrslunnar eru í fullu samræmi við fyrri skýrslur um sama efni og við reynslu stéttarfélaga og Vinnustaðaeftirlits ASÍ.

Eins og fram kemur í skýrslunni fjölgaði erlendu starfsfólki í ferðaþjónustu mikið í tengslum við hraðan vöxt ferðaþjónustunnar. Dæmi eru um að fólk vinni full störf og jafnvel meira fyrir lítil eða engin laun og að sjálfboðaliðastörf séu notuð sem yfirvarp. Nokkuð algengt er að atvinnurekendur útvegi starfsfólki húsnæði. Leiguupphæð er gjarnan yfir markaðsverði á viðkomandi svæði en hvorki stéttarfélög né aðrir eftirlitsaðilar hafa heimildir til að fylgja því eftir að húsnæði sé viðunandi. Ráðningarsambandið er oft ótryggt og mikill misbrestur á gerð ráðningarsamninga og útgáfu launaseðla. Þá eru fjölmörg dæmi um að fólk þori ekki að hafa samband við stéttarfélög af ótta við brottrekstur eða vegna slæmrar reynslu af stéttarfélögum í heimalandi.

ASÍ skorar á ferðaþjónustufyrirtæki og samtök atvinnurekenda að axla þegar í stað ábyrgð á brotum gegn erlendu starfsfólki og fyrirbyggja slík brot til framtíðar, þar á meðal með því að tryggja fræðslu til rekstraraðila. ASÍ kallar eftir því að loforð Lífskjarasamninganna um lagalegar heimildir til refsinga vegna brota á kjarasamningum verði uppfyllt, enda er ólíðandi að slík brot, sem eru hreinn og klár þjófnaður, viðgangist refsilaust. Þá þarf að tryggja heimildir Vinnustaðaeftirlits stéttarfélaganna og opinberra eftirlitsaðila, þ. á m. slökkviliðs og heilbrigðiseftirlits, til að hafa eftirlit með húsnæði sem atvinnurekendur útvega starfsfólki.

María Lóa Friðjónsdóttir, verkefnastjóri Vinnustaðaeftirlits ASÍ:

„Verkalýðshreyfingin hefur ítrekað verið sökuð um að ljúga og fara offari þegar greint er frá aðbúnaði og kjörum erlends starfsfólks. Skýrsla Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála er mikilvægt innlegg því hún sýnir svart á hvítu það sem fyrri úttektir og reynsla stéttarfélaganna hafa bent til, það er að réttur erlends launafólks í ferðaþjónustu er víða fyrir borð borinn. Þetta er fullkomlega í samræmi við þann veruleika sem við í Vinnustaðaeftirliti ASÍ höfum orðið vitni að og kallað eftir aðgerðum gegn.“

„Fyrr á þessu ári gerðu ASÍ og ISAVIA samning sín í milli um miðlun upplýsinga til erlends launafólks um íslenskan vinnumarkað, kjarasamninga, réttindi og skyldur. Stéttarfélög reyna einnig að ná sambandi við erlent launafólk til að tryggja réttindi þess og eftirlitsfulltrúar ASÍ og aðildarfélaganna dreifa bæklingum og upplýsingum um stéttarfélögin í öllum vinnustaðaheimsóknum sínum. Við bíðum hins vegar enn eftir heimildum til að hafa eftirlit með íbúðarhúsnæði og eftir því að refsiheimildir vegna launaþjófnaðar verði settar í lög. Tími aðgerða hlýtur að vera runninn upp.“