VIRK - Leitað eftir vinnustöðum til þátttöku í tilraunaverkefni um Helilsueflandi vinnustaði

Embætti landlæknis, Vinnueftirlit ríkisins og VIRK Starfsendurhæfingarsjóður hafa undanfarna mánuði unnið að viðmiðum til að tryggja að vinnustaðir hafi góð verkfæri til að skapa heilsueflandi umhverfi.

Verkefnið um Heilsueflandi vinnustaði byggir á sömu hugmyndafræði og verkefni embættis landlæknis um Heilsueflandi samfélag og Heilsueflandi leik-, grunn-, og framhaldsskóla.

Markmið verkefnisins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan starfsfólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.

Nú ler leitað eftir vinnustöðum af öllum stærðum og gerðum til að taka þátt í tilraunaverkefni þar sem viðmiðin verða prufukeyrð. Um er að ræða spennandi verkefni sem allir starfsmenn vinnustaðar geta sameinast um. Fræðsla og stuðningur verður í boði á tilraunatímabilinu. Þátttaka í verkefninu krefst skuldbindingar af hálfu vinnustaðarins á árinu 2020.

Áhugasamir sendi upplýsingar um stærð og gerð vinnustaðar á netfangið ingibjorgl@virk.is