1. maí á Akureyri 2025
- 125 stk.
- 02.05.2025
Fjölmenni safnaðist saman á Akureyri til að taka þátt í kröfugöngu sem stéttarfélögin á Akureyri stóðu fyrir í tilefni af 1. maí 2025, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks.
Skoða myndirFjölmenni safnaðist saman á Akureyri til að taka þátt í kröfugöngu sem stéttarfélögin á Akureyri stóðu fyrir í tilefni af 1. maí 2025, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks.
Skoða myndirFélagið er með á leigu stórt og fínt hús á Flúðum. Stór pallur er við húsið með útihúsgögnum og gasgrilli. Húsið er 76 fermetrar að stærð og í því eru þrjú svefnherbergi; tvö með hjónarúmi og eitt með kojum. Sex manns geta gist í húsinu. Barnarúm og barnastóll er í húsinu. Nánari upplýsingar á https://mitt.ein.is/ þegar umsóknartímabil er opið
Skoða myndirÍ orlofshúsahverfinu Einarsstaðir á Héraði á Eining-Iðja fjögur hús. Tvö þeirra voru algjörlega endurnýjuð og stækkuð lítillega veturinn 2019-2020 og tvö veturinn 2020-2021. Þannig að frá og með sumrinu 2021 var búið að endurnýja öll húsin. Óhætt er að segja að húsin eru stórglæsileg. Húsin eru um 62 fermetrar að stærð með tveimur svefnherbergjum. Nánari upplýsingar á https://mitt.ein.is/
Skoða myndirUm er að ræða íbúð í raðhúsi, 71 fermetrar að stærð. Á neðri hæð er hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi, gestaherbergi með tveimur einbreiðum rúmum og baðherbergi með sturtu. Á efri hæð er stofa/borðstofa og eldhús í samfelldu rými svo og gestaherbergi með 1,5 breiðu rúmi, samtals svefnpláss fyrir sex. Í stofu er sófi og stofustóll, eldhúsborð og stólar. Út frá efri hæð eru svalir með svalarhúsgögnum og gasgrilli. Í nágrenninu er hægt að stunda afþreyingu á borð við gönguferðir. Golfvöll er að finna í 1,1 km fjarlægð frá gististaðnum. Þá er vert að benda á áhugaverðan valkost sem er að nota Breiðafjarðarferjuna Baldur en hún siglir milli Brjánslækjar í Vatnsfirði og Stykkishólms með viðkomu í Flatey. Þarna eru því margir möguleikar á styttri og lengri ferðum fyrir dvalargesti. Nánari upplýsingar á https://mitt.ein.is/ þegar umsóknartímabil er opið
Skoða myndirOrlofshús félagsins í Húsafelli var tekið í notkun í október 2023 og er það allt hið glæsilegasta. Húsið er um 83 fermetrar að stærð með öllum helstu þægindum, stórum palli og að sjálfsögðu er heitur pottur við húsið. Svefnherbergi eru þrjú, tvö hjónaherbergi og í báðum eru tvö 80 cm rúm sett saman og eitt herbergi með koju á þremur hæðum, neðsta kojan er 120 cm en tvær efri eru 80 cm breiðar. Svefnpláss er fyrir átta manns. Eldhús og stofa eru í sama rýminu. Nánari upplýsingar á https://mitt.ein.is/
Skoða myndirFélagið á fimm íbúðir í fimm hæða fjölbýlishúsi sem stendur við Álalind 2 í Kópavogi. Um er að ræða fjórar fjögurra herbergja íbúðir og eina þriggja herbergja íbúð. Sér bílastæði í bílakjallara fylgir hverri íbúð. Fjögurra herbergja íbúðirnar eru 96 fermetrar að stærð en þriggja herbergja íbúðin er 75 fermetrar. Nánari upplýsingar á https://mitt.ein.is/
Skoða myndirNokkrir stjórnarmenn í Iðnaðar- og tækjadeild Einingar-Iðju ásamt fulltrúum úr aðalstjórn félagsins fóru í heimsókn í Vaðlaheiðargöngin. Með í för var Ásgrímur upplýsingafulltrúi félagsins og tók hann nokkrar myndir
Skoða myndirFjölmenni safnaðist saman á Akureyri til að taka þátt í kröfugöngu sem stéttarfélögin á Akureyri stóðu fyrir í tilefni af 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks. Einnig var góð mæting í kaffiveislu á skrifstofu stéttarfélaganna í Fjallabyggð. Yfirskrift þessa baráttudags okkar að þessu sinni eru „Sterk hreyfing – sterkt samfélag” sem vísar til þess að verkalýðshreyfingin hefur öðrum fremur mótað Ísland sem velferðarsamfélag. Gengið var frá Alþýðuhúsinu, við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar, gegnum miðbæinn að Ráðhústorgi og svo niður í Menningarhúsið HOF, þar sem fram fór hátíðardagskrá í tilefni dagsins. Guðmundur Helgi Þórarinsson formaður VM, Félags vélstjóra og málmtæknimanna, flutti ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusamands Íslands, flutti hátíðarræðuna að þess sinni. Auk þess var boðið upp á skemmtiatriði. Félagar í Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri mættu á svæðið og tók tvö skemmtileg dans og söngatriði úr söngleiknum um Gosa sem þau settu nýlega á svið. Í lok dagskrár mætti Ívar Helgason á svæðið og tók nokkur lög. Að dagskrá lokinni var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðaborð í Menningarhúsinu HOFI.
Skoða myndirFrábær mæting var á baráttufund á Ráðhústorginu á Akureyri í tilefni kvennaverkfalls 24. október 2023.
Skoða myndirÍ október 2023 tók félagið í notkun nýtt orlofshús í Húsafelli. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru þegar verið var að standsetja það fyrir fyrstu leigu.
Skoða myndirHin árlega eins dags ferð fyrir eldri Einingar-Iðjufélaga var farin í gær, þriðjudaginn 20. júní. Um 100 félagsmenn og makar lögðu af stað í tveimur rútum frá Akureyri um kl. 9:00 og var ekið sem leið lá vestur í Húnavatnssýslur. Farið var um fremri Blöndubrúna, Svínadal og Reykjabraut, Vatnsdalshringurinn og að Þingeyrum þar sem kirkjan var skoðuð. Þaðan var farið um Blönduós til Kálfshamarsvíkur þar sem var stoppað, gengið um svæðið að vitanum og áfram fyrir Skaga til Sauðárkróks og Varmahlíðar áður en haldið var yfir Öxnadalsheiði og heim á ný. Snæddur var hádegisverður á Hótel Blönduósi og kaffi drukkið í Skagafirði, í Miðgarði. Frábærir leiðsegjendur voru í ferðinni, þau Bragi Guðmundsson og Kristín Sigurrós Einarsdóttir.
Skoða myndirFjölmenni safnaðist saman á Akureyri í dag til að taka þátt í kröfugöngu sem stéttarfélögin á Akureyri stóðu fyrir í tilefni af 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks. Kjörorð dagsins eru "RÉTTLÆTI, JÖFNUÐUR, VELFERÐ." Gengið var frá Alþýðuhúsinu, við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar, gegnum miðbæinn að Ráðhústorgi og svo niður í Menningarhúsið HOF, þar sem fram fór hátíðardagskrá í tilefni dagsins. Kristín Konráðsdóttir, félagi í Sameyki, flutti ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna við Eyjafjörð og Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, flutti hátíðarræðu dagsins. Auk þess var boðið upp á skemmtiatriði. Bryndís Ásmundsdóttir stýrði dagskránni og söng nokkur vel valin lög og félagar í Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri mættu á svæðið og tók tvö skemmtileg dans og söngatriði úr söngleiknum Footloose sem þau settu nýlega á svið. Í lok dagskrár tóku þau svo undir með Bryndísi og þéttsetnum sal af fólki þegar Maístjarnan var sungin. Að dagskrá lokinni var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðaborð í Menningarhúsinu HOFI.
Skoða myndirHin árlega eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga var farin fimmtudaginn 23. júní sl. Í ár var farið út í Hrísey. Ekið var um eyjuna og hún skoðuð, m.a. var farið í Hús Hákarla Jörundar. Hádegisverður var snæddur í íþróttahúsinu undir ljúfum tónum ungs harmonikkuspilara. Að því loknu var siglt í land á ný og ekið um Svarfaðardal. Að lokum var farið í kaffihlaðborð í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Skoða myndirÍ september 2021 ákvað stjórn Einingar-Iðju að láta stækka hús félagsins nr. 18 á Illugastöðum og hófust framkvæmdir í byrjun október sama ár. Eftir stækkun er húsið um 75 fermetrar að stærð, en viðbyggingin sjálf er um 30 fermetrar. Húsið var tekið í notkun á ný í júní 2022 og er allt hið glæsilegasta. Nánari upplýsingar á https://mitt.ein.is/
Skoða myndirNokkrar myndir í tilewfni dagsins frá Akureyri og Fjallabyggð.
Skoða myndirEining-Iðja á tvö hús í Svignaskarði í Borgarfirði. Húsin eru glæsileg, hús nr. 28 er 75 fermetrar og hús nr. 41 er 80 fermetrar. Bæði eru með öllum helstu þægindum og heitum potti. Stærra húsið var tekið í notkun í desember 2021 og hitt fyrir nokkrum árum. Nánari upplýsingar á https://mitt.ein.is/
Skoða myndir