Dagsferð fyrir félagsmenn - Flatey á Skjálfanda

Dagsferð Einingar-Iðju verður að þessu sinni þriðjudaginn 18. ágúst 2026 og verður siglt út í Flatey á Skjálfanda. Ferðin kostar kr. 15.000 á mann. Skráning í ferð stendur yfir en hún fer fram í gegnum vefverslun félagsins þar sem greiðsla miða fer jafnframt fram.

Ekið verður frá Akureyri til Húsavíkur og þaðan siglt með hvalaskoðunarbát frá Norðursiglingu út í Flatey á Skjálfanda. Gönguferð verður um eyjuna með leiðsögn heimamanna. Vert er að huga að því að um er að ræða þó nokkra göngu út í eyjunni. Alls eru 80 sæti í boði.

Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 8:00.

Veitingar verða í boði.

Flatey á Skjálfanda
Á heimasíðu Norðursiglingar segir m.a. að í Flatey á Skjálfandaflóa má segja að tíminn standi í stað en hið hraða líf nútímans hefur enn ekki náð að festa rætur í þessari paradísareyju norðursins. Ef þú ert að leita af stað til að slappa af, hægja á þér og ná andanum þá mælum við svo sannarlega með heimsókn til Flateyjar.

Í Flatey eru frábærar aðstæður til fuglaskoðunar en yfir 30 fuglategundir sjást þar við land yfir sumartímann, fuglategundir á borð við kríur, lunda og æðarfugla. Það er auðvelt að gleyma sér á gangi um eyjuna umkringdur fuglasöng og náttúrufegurð.

Byggð var í eyjunni frá 12. öld og í aldaraðir lifðu íbúar hennar sjávarútvegi og búffjárrækt. Þó vou hlunnindi einnig nokkur af rekaviði og sel, sem og fuglavarpi. Þegar mest var bjuggu um 120 manns í Flatey en síðustu íbúar fluttu á meginlandið árið 1967 og sögðu skilið við þá einangrun sem fylgdi því að búa svo afskekkt.
Í dag eru það afkomendur fyrri íbúa sem halda húsum eyjunnar við og eru þau mörg hver afar glæsileg. Í eyjunni má finna gamalt samkomuhús og kirkju, reisulegan vita og gamla bryggju.