Fulltrúaráðsfundur Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa boðaði til rafræns fundar fulltrúaráðs miðvikudaginn 3. desember 2025, kl. 16:30. Félagið á rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn og hafa þeir verið boðaðir á hann.

Samkvæmt grein 3.7 í samþykktum skal stjórn sjóðsins kalla saman fulltrúaráðið tvisvar á ári, að hausti og í aðdraganda ársfundar, þar sem málefni sjóðsins eru rædd. Um hlutverk og starfsemi fulltrúaráðs að öðru leyti vísast í kjarasamninga.

Fulltrúaráðið er skipað þeim sem tilnefndir voru á ársfund sjóðsins þann 2. maí sl. sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa.

Aðilar í fulltrúaráði frá ársfundinum eða varamenn þeirra hafa atkvæðisrétt á fulltrúaráðsfundum.

Drög að dagskrá fundarins eru eftirfarandi:

  1. Lykilatriði úr rekstri sjóðsins 2025
  2. Fjárfestingarstefna 2026
  3. Áhrif dóms Hæstaréttar í vaxtamálunum
  4. Framlag til jöfnunar á örorkubyrði
  5. Önnur mál