Lágmarksþjónusta á kjarasviði

10. þing Starfsgreinasambands Íslands fer fram á Akureyri dagana 8. til 10. október 2025.

Fulltrúar á kjarasviði félagsins verða að störfum á þinginu og því verður lágmarksþjónusta á sviðinu seinni tvo daga þingsins. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Vert er að benda á að á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.

Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.

Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is