Lokað föstudaga á Dalvík í sumar

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Vegna sumarleyfa verður lokað á skrifstofu félagsins á Dalvík alla föstudaga í júní, júlí og ágúst.

Það verður einnig lokað dagana 20. júlí til 7. ágúst.

Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.

Á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.

Við minnum á símann okkar, 460 3600, sem er opinn alla daga milli kl. 8 og 16. Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is