Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir - skilafrestur umsókna

Reglur um skil á umsókn og gögnum til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins

Í desember þarf að skila inn umsókn og gögnum fyrr en venjulega

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram í síðasta lagi 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf inn umsókn og gögnum til félagsins í síðasta lagi 20. desember 2022 til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2023.

Vinsamlegast athugið!

Fundur er haldinn í stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju einu sinni í mánuði. Umsókn og gögn sem leggja á fyrir fund þurfa að hafa borist til skrifstofunnar í síðasta lagi 24. hvers mánaðar. ATH! breytilegt er milli ára hvenær skila þarf gögnum í febrúar og desember.

Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins.

Það sama gildir vegna skila á umsókn og gögnum til fræðslusjóða félagsins. Ekki er hægt að ábyrgjast greiðslu um næstu mánaðamót ef þau koma eftir 24. hvers mánaðar.

ATHUGIÐ! Nú er hægt að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum félagsins