Fimmtudaginn 15. janúar 2026 verður lokað kl. 13:00 á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.
Opið verður á skrifstofum félagsins á Akureyri og á Dalvík á hefðbundnum opnunartíma.
Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.
Vert er að benda á að á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.