Reiknivél vegna skerðingar á starfshlutfalli

Nokkuð ljóst er að áhrif af COVID 19 munu koma hart niður á okkar félagsmönnum og að mörg fyrirtæki munu óska eftir því að starfsmenn þeirra fari á hlutabætur. Eining-Iðja hvetur félagsmenn sína til þess að kynna sér réttarstöðu sína vel og vandlega en fjölmargar upplýsingar er hægt að finna inná vef ASÍ.  Á vef Vinnumálastofnunar má nálgast upplýsingar, m.a. vegna minnkaðs starfshlutfalls og greiðslur í sóttkví. Sjá nánar hér

Höfum í huga að allir sem fara á hlutabætur/atvinnuleysisbætur ávinna sér ekki orlof, desemberuppbót eða orlofsuppbót af atvinnuleysisbótum. Við hvetjum félagsmenn okkar sem fara á atvinnuleysisbætur að greiða félagsgjaldið af atvinnuleysisbótum til stéttarfélagsins til að tryggja full réttindi í félaginu meðal annars úr sjúkrasjóði. 

Þeir sem hafa 400.00 kr. laun fyrir 100% vinnu og fara á hlutabætur skerðast ekki í launum en allir fyrir ofan það skerðast.  

Þegar sótt er um hlutabætur þarf atvinnurekandi og starfsmaður að skrifa undir samkomulag um hlutabætur en það má finna hér. Bæði atvinnurekandi og starfsmaður þurfa svo að sækja um hjá vinnumálastofnun.  

Reiknivélin virkar þannig að fólk slær inn núverandi starfshlutfall og síðan inn skert starfshlutfall og mánaðarlaun, þá á fólk að geta séð hvernig  laun frá atvinnurekenda og frá atvinnuleysistryggingarsjóði koma út í heildina. Rétt er að ítreka að laun að kr. 400.000 munu ekki skerðast.