Ársfundur Stapa 2024

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 2. maí 2024 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 14:00. Félagið á rétt á að senda 41 fulltrúa á fundinn. Kosning þessara fulltrúa fer fram árlega á aðalfundi félagsins.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og segir á heimasíðu Stapa að stjórn sjóðsins vonist eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans.

Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Greinargerð með samþykktarbreytingum hefur verið send aðildarfélögum.

Dagskrá fundarins

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegt mat
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Hluthafastefna sjóðsins
  5. Breytingar á samþykktum
  6. Stjórnarkjöri lýst
  7. Kosning löggilts endurskoðanda
  8. Starfskjarastefna
  9. Ákvörðun um laun stjórnar
  10. Val á fulltrúum í nefnd um laun stjórnar
  11. Önnur mál

Gögn fundarins