Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir - skilafrestur umsókna

ATH! Í febrúar 2026 þarf að skila inn umsókn og gögnum í síðasta lagi 23. febrúar 

Reglur um skil á umsókn og gögnum til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins

Vinsamlegast athugið!

Fundur er haldinn í stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju einu sinni í mánuði. Umsóknir og Gögn sem leggja á fyrir fund þurfa að hafa borist til skrifstofunnar í síðasta lagi 24. hvers mánaðar. ATH! breytilegt er milli ára hvenær skila þarf gögnum í febrúar og desember.

ATH! Í febrúar 2026 þarf að skila inn umsókn og gögnum í síðasta lagi 23. febrúar 

Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins.

Það sama gildir vegna skila á umsókn og gögnum til fræðslusjóða félagsins. Ekki er hægt að ábyrgjast greiðslu um næstu mánaðamót ef umsókn eða gögn koma eftir 24. hvers mánaðar. ATH! Í febrúar 2026 þarf að skila inn umsókn og gögnum í síðasta lagi 23. febrúar.

ATHUGIÐ! Sækið rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að sækja um sjúkradagpeninga

Hér má sjá reglur um skil á læknisvottorði